10. mars 2012

Leik í 2. flokki frestað um óákveðinn tíma

Leik Harðar og Aftureldingar í 2. flokki hefur verið frestað um óákveðinn tíma, en leikur 3. flokks gegn Selfossi stendur eins og er.

Leik í 2. flokki hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Leikmenn Aftureldingar og dómarar leiksins voru í flugi í morgun sem sneri við í djúpinu. Ekki var hægt að koma þeim í flug á morgun vegna plássleysis, og því fer leikurinn fram síðar.

Leikurinn í 3. flokki gegn Selfossi stendur eins og er, en veðurspá morgundagsins er ekki góð heldur. Vonast er til þess að allt fari á besta veg.