26. sep. 2019
Tadeo Salduna semur við Hörð
Handknattleiksdeild Harðar hefur samið við örvhentu skyttuna Tadeo Salduna um að spila með liðinu í 2. deild karla.

Handknattleiksdeild Harðar hefur samið við Tadeo Salduna um að spila með liðinu í 2. deild karla. Tadeo er örvhent skytta og er væntanlegur vestur 6. október.
Deildin býður Tadeo velkominn. Í færslunni segir jafnframt að vænst sé þess að Carlos Martin Santos fagni því að geta talað sitt tungumál við að minnsta kosti einn leikmann.