23. sep. 2019

Hörður tapaði 14-38 fyrir Fram í fyrsta leik í annarri deild

Hörður lék sinn fyrsta handboltaleik í annarri deild eftir margra ára fjarveru og tapaði 14-38 fyrir unglið Fram á Ísafirði.

Hörður spilaði sinn fyrsta handboltaleik eftir margra ára fjarveru í annarri deild. Unglið Fram kom til Ísafjarðar og mætti ísfirsku nýliðunum. Fyrir leikinn fékk Jens Kristmannsson Harðartreyju númer 100 fyrir framlag sitt til félagsins.

Ísfirðingarnir voru lengi í gang og var talsvert um byrjendamistök hjá liðinu. Í byrjun seinni hálfleiks komst liðið á skrið og stóð um tíma í Frömmurunum, en það dugði ekki til og leikurinn fór 14-38 fyrir Fram. Hreinn Róbert Jónsson var markahæstur heimamanna með 4 mörk.

Rúmlega 200 áhorfendur komu á leikinn og gæddu sér í lok leiks á afmælistertu í tilefni 100 ára afmælis Harðar. Félagið þakkar innilega þeim sem mættu og studdu liðið í leiknum.