6. mars 2012
2. flokkur tapaði tveimur leikjum fyrir sunnan
Sjö piltar úr 2. flokki Harðar léku um helgina gegn Gróttu og Þrótti, töpuðu 34-21 og 28-24, og næstu leikir eru á Torfnesi um næstu helgi.
Sjö piltar úr 2. flokki Harðar spiluðu tvo leiki fyrir sunnan um nýliðna helgi. Erfitt var að manna liðið vegna vinnu, veikinda, leiklistar og fleira. Flugi frá Ísafirði á laugardeginum seinkaði og fyrri leik helgarinnar var frestað um nokkrar klukkustundir.
Fyrri leikurinn var gegn Gróttu á Seltjarnarnesi og tapaðist 34-21, en staðan í hálfleik var 15-8. Eftir leikinn fóru piltarnir í bíó á Svartur á leik. Á sunnudagsmorgni var leikið gegn Þrótti í Laugardalshöll kl. 10:00. Leikurinn tapaðist 28-24 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 16-10, svo síðari hálfleikurinn vannst 14-12. Liðið var án varamanna.
Heimaleikirnir gegn Gróttu og Þrótti fara fram í lok mars í Harpixhöllinni á Torfnesi. Næstu leikir Harðar eru einnig á Torfnesi um næstu helgi. Á laugardag kl. 14:00 spilar 2. flokkur gegn Aftureldingu og á sunnudag kl. 14:00 spilar 3. flokkur gegn Selfossi.