21. ágú. 2019

Carlos Martin Santos ráðinn þjálfari Harðar til tveggja ára

Carlos Martin Santos hefur verið ráðinn þjálfari Harðar næstu 2 árin með möguleika á framlengingu og kemur til Ísafjarðar á sunnudaginn.

Carlos Martin Santos hefur verið ráðinn þjálfari Harðar næstu 2 árin með möguleika á framlengingu. Hann er væntanlegur til Ísafjarðar á sunnudaginn og hefur störf þá þegar. Carlos mun þjálfa yngri flokka og meistaraflokk karla. Með honum í yngri flokkunum verður Ásgeir Óli Kristjánsson, svo tungumálið á ekki að vefjast fyrir neinum.

Carlos hefur lokið þjálfaramenntun frá spænska handknattleikssambandinu og er með meistaragráðu í "sports performance", eða árangursríkri þjálfun með áherslu á handbolta, frá Háskólanum í Barcelona. Hann er auk þess með BSc gráður í íþróttafræði og hreyfiþjálfun frá Háskólunum í Extremadura og Salamanca.

Carlos hefur þjálfað handbolta frá 2006 og undanfarin ár þjálfað í Serbíu og á Spáni. Félagið væntir mikils af honum og vonast til þess að hann geti náð félaginu í nýjar hæðir.