19. feb. 2012

2. flokkur tapaði fyrir ÍR 25-20

2. flokkur Harðar tapaði fyrir ÍR 25-20 eftir að hafa verið 14-8 undir í hálfleik, en seinni hálfleikurinn var mun betri en sá fyrri.

2. flokkur spilaði við ÍR í dag og leikurinn tapaðist 25-20. Staðan í hálfleik var 14-8 fyrir ÍR.

Seinni hálfleikurinn var mun betri en sá fyrri. Á tímabili náði liðið að minnka muninn niður í 3 mörk og ekki munaði miklu að það kæmist enn nær og gerði leikinn enn jafnari.

Enn eru nokkrir leikir eftir af tímabilinu og vonast er til að liðið nái langþráðum sigri fljótlega. Leikmannapistlar frá 2. og 3. flokki koma á heimasíðu félagsins á allra næstu dögum, þar sem leikmenn segja sjálfir frá reynslu sinni af leikjum helgarinnar.