5. feb. 2012

2. flokkur tapaði fyrir ÍBV, eldra ár 5. flokks vann deildina á Hafnarfjarðarmótinu

Báðir leikir 2. flokks gegn ÍBV í Seljaskóla töpuðust, en eldra ár 5. flokks vann sína deild á Hafnarfjarðarmótinu með betri markatölu en ÍR.

Báðir leikir 2. flokks um helgina töpuðust gegn ÍBV í Seljaskóla.

Eldra ár 5. flokks fór á Hafnarfjarðarmótið og sigraði sína deild. Drengirnir unnu 3 leiki um helgina og gerðu síðan jafntefli við ÍR í úrslitaleiknum um 1. sæti deildarinnar. Strákarnir unnu deildina með betri markatölu en ÍR-ingarnir. Allir sigrar liðsins voru glæsilegir og mjög sannfærandi.

Myndir af sigurvegurum mótsins koma inn á heimasíðu Harðar innan skamms, ásamt frétt um ferðina og mótið.