6. maí 2019
6. flokkur karla hjá Herði í 5. sæti í 1. deild í vetur
Harðverjar kepptu um helgina í 1. deild í 6. flokki karla í Reykjavík og urðu í 5. sæti vetrarins eftir leiki við Hauka, Víking, Fram og HK.
Harðverjar kepptu um helgina í 6. flokki karla í Reykjavík á móti í umsjón Fjölnis. Drengirnir fengu góðar móttökur og fína aðstöðu þar.
Félagið keppti í fyrsta sinn í efstu deild, en strákarnir höfðu áður unnið 4., 3. og 2. deild í vetur. Vitað var fyrirfram að leikirnir yrðu mjög erfiðir og það var raunin. Keppt var við Hauka, Íslandsmeistara Víkings, Fram og HK í 1. deild. Okkar menn urðu í 5. sæti vetrarins eftir hörkuleiki við þessi félög.
Strákarnir hafa lagt mikið á sig í vetur, með mörgum ferðalögum og mörgum æfingum, og Harðverjar eru afar stoltir af þeim. Keppnisleikjum vetrarins er nú lokið en æfingar munu standa út maí.