22. jan. 2012

Bikarleikur 3. flokks karla gegn Haukum á morgun í Torfnesi

3. flokkur karla mætir 1. deildarliði Hauka í bikarleik á morgun, sunnudag, kl. 14:00 í Torfnesi og er frítt inn.

Bikarleikur 3. flokks karla fer fram á morgun, sunnudag, kl. 14:00 í Torfnesi. Drengirnir mæta þar 1. deildarliði Hauka, sem er sagt firnasterkt. Frítt er inn og vonast er til að sem flestir mæti og skapi góða heimavallarstemmningu.

Hinum tveimur leikjum helgarinnar var frestað þar sem ekki var flogið til Ísafjarðar á föstudag. Drengirnir eru því spenntir að fá loksins að spila.

Eftir leik er á dagskrá leikur Íslands og Ungverjalands á EM. Kl. 16:00 fer síðan fram útnefning á Íþróttamanni Ísafjarðarbæjar á 3. hæð Stjórnsýsluhússins og eru allir hvattir til að koma á viðburðinn.