18. mars 2019
6. flokkur karla deildarmeistari í 2. deild og fer í 1. deild
6. flokkur karla hjá Herði vann 2. deild á þriðja Íslandsmóti vetrarins og leikur í 1. deild á lokamóti vetrarins í byrjun maí.

6. flokkur karla tók um helgina þátt í sínu þriðja Íslandsmóti í vetur. Í nóvember vann Hörður 4. deild á móti sem Valur hélt á Hlíðarenda. Í febrúar vann liðið 3. deild á móti sem Fylkir hélt. Um helgina keppti liðið í 2. deild á móti sem Handknattleiksdeild Fram hélt.
Fyrsti leikurinn var gegn Fram1 og lauk honum með jafntefli, 7-7. Hörður vann Þór Akureyri1 15-9 og Hauka2 10-7. Fram hafði unnið alla sína leiki og gert jafntefli við Hörð, svo úrslit deildarinnar réðust á markahlutfalli. Í síðasta leiknum, gegn Gróttu1, var staðan 8-1 í hálfleik og lokatölur voru 11-4. Það tryggði Herði deildarmeistaratitil í 2. deild og sæti í 1. deild á lokamóti vetrarins.
Lokamótið er í byrjun maí, gegn fimm bestu liðum landsins. Strákarnir eru að mestu fæddir árið 2008. Í byrjun vetrar voru þeir í 42. sæti á styrkleikalista flokksins en samkvæmt útreikningum félagsins verða þeir í 5. sæti á næsta lista, eða 37 sætum ofar. Félagið veit ekki til þess að lið hafi áður orðið deildarmeistari þrisvar sinnum sama veturinn. Þjálfari er Óskar Jón Guðmundsson.
