4. feb. 2019
Hörður vann 3. deild á Íslandsmóti 6. flokks karla
Hörður vann alla fjóra leiki sína í 3. deild á Íslandsmóti 6. flokks karla í Reykjavík, skoraði 42 mörk og fékk á sig 15.

Hörður keppti á einu af Íslandsmótum 6. flokks karla um helgina og var mótið haldið af Fylki í Árbæ. Drengirnir eru í 4., 5. og 6. bekk. Átta drengir fóru til Reykjavíkur ásamt þjálfara og fararstjóra á föstudagsseinnipartinn. Fylkir útvegaði hópnum aðstöðu í félagsheimilinu Holtinu í Norðlingaholti. Þar gátu drengirnir hvílt sig milli leikja með þythokkí, snóker, borðtennis, lestri og fleiru. Fyrir leik var farið í heilsubótargöngu og skoðunarferð um Perluna, sem er orðin hefð hjá drengjunum.
Drengirnir unnu sig upp úr 4. deild í nóvember og léku því í fyrsta sinn í 3. deild. Hörður vann HK 10-4, Fram GH3 9-2 og Fram GH2 12-5. Eftir þriðja leikinn var deildarsigurinn í höfn. Í síðasta leiknum vann Hörður Víking 2 með 11 mörkum gegn 4. Víkingar veittu góða mótspyrnu undir stjórn þjálfara síns, Harðverjans Davíðs Más Kristinssonar. Alls voru spilaðir fjórir leikir, fjórir sigrar unnust, 42 mörk voru skoruð og 15 fengin á sig. Næst spilar Hörður í 6. flokki um miðjan mars, þá í 2. deild.
Eftir síðasta leik á laugardagskvöldinu fór hópurinn á uppáhaldsmatsölustað sinn, IKEA, áður en haldið var heim. Þjálfari strákanna er Óskar Jón Guðmundsson. Drengirnir vöktu athygli viðstaddra fyrir mikla samheldni. Deildarmeistaratitillinn kemur á 100 ára afmæli félagsins og vonast félagið til að strákarnir haldi áfram að vaxa á næstu deildarmótum. Allir eru velkomnir á handboltaæfingar og engin æfingagjöld eru innheimt.
