27. nóv. 2018
7. flokkur Harðar keppti á móti hjá ÍR í Reykjavík
7. flokkur Harðar fór í keppnisferð til Reykjavíkur á mót hjá ÍR og spilaði erfiða leiki gegn bestu liðum landsins.

Um síðustu helgi fór 7. flokkur Harðar í keppnisferð til Reykjavíkur á mót hjá ÍR. Strákarnir stóðu sig afskaplega vel í erfiðum leikjum gegn bestu liðum landsins.
Eldra lið Harðar spilaði 5 leiki, vann 2, gerði 2 jafntefli og tapaði 1. Yngra liðið vann 2 leiki og tapaði tveimur.
Í færslu félagsins segir að þetta séu flottir strákar sem eiga framtíðina fyrir sér.





