13. nóv. 2018
6. flokkur Harðar vann alla leiki á Íslandsmótinu í handbolta
Drengir í 6. flokki Harðar unnu alla fjóra leiki sína á Íslandsmótinu í handbolta, urðu deildarmeistarar og fara upp um deild.

6. flokkur Harðar tók þátt í Íslandsmótinu í handbolta um síðastliðna helgi. Mótið fer fram þannig að keppt er á 5 hraðmótum yfir helgi. Drengirnir í hópnum eru í 4. og 5. bekk og voru að fara á sitt fyrsta mót í vetur. Valur sá um mótið í Origo-höllinni við Hlíðarenda. Fyrir leik fóru þeir í göngutúr og skoðunarferð um hverfið, þar sem Perlan vakti sérstaka athygli og þeir nutu útsýnisins.
Hörður vann alla fjóra andstæðinga sína á mótinu: Fylki 10-6, FH3 9-6, Stjörnuna 9-3 og Selfoss 13-5. Strákarnir eru því deildarmeistarar og fara upp um deild. Næsta mót þeirra er 1-3. febrúar í Árbænum í umsjón Fylkis.
Allir eru velkomnir á æfingar og má sjá æfingatíma á Facebook síðu Harðar. Engin æfingagjöld eru í handboltastarfinu. Þjálfari er Óskar Jón Guðmundsson.






