3. okt. 2026

Hörður og Stjarnan: þjálfarar hafa náð sáttum eftir leik í 3. flokki karla

Aðalþjálfari Stjörnunnar og aðstoðarþjálfari Harðar hafa náð fullum sáttum vegna atvika í leik liðanna í 3. flokki karla á Ísafirði.

Handknattleiksdeild Harðar og þjálfari Stjörnunnar hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna leiks félaganna í 3. flokki karla. Aðalþjálfari Stjörnunnar og aðstoðarþjálfari Harðar hafa náð fullum sáttum vegna atvika sem urðu í leiknum á Ísafirði og eftir hann.

Þeir ræddu saman í bróðerni og báðust afsökunar hvor á öðrum. Þeir eru sammála um að allir hefðu átt að vanda samskipti sín betur og að þjálfarar eigi öllum stundum að vera fyrirmyndir ungra iðkenda. Orð féllu í hita leiksins og eru aðilar sammála um að þau voru misskilin og að það sé miður.

Báðir aðilar hafa jafnframt dregið til baka allar kvartanir sínar vegna málsins og telja ekki tilefni til frekari aðgerða af neinu tagi. Yfirlýsingin er dagsett á Ísafirði og í Garðabæ 3. október 2026.