18. júní 2014

Landsliðsmenn koma til Ísafjarðar laugardaginn 21. júní

Guðjón Valur Sigurðsson, Aron Pálmarsson og Björgvin Páll Gústafsson hjóla í kringum landið til styrktar Barnaspítala Hringsins og verða á Ísafirði laugardaginn 21. júní.

Hörður minnir iðkendur sína og aðra krakka á Vestfjörðum á að skrá sig á viðburð sem Guðjón Valur Sigurðsson, Aron Pálmarsson og Björgvin Páll Gústafsson halda utan um. Þeir hjóla í kringum landið og safna peningum til styrktar Barnaspítala Hringsins. Allur ágóði af skráningu rennur til spítalans.

Skráning fer fram í gegnum Facebook-síðuna Landsliðið á ferðinni, þar sem velja þarf „Skráning“.

Dagskráin á Ísafirði laugardaginn 21. júní er þessi: kl. 9.00-10.30 unglingar 13-16 ára, kl. 10.30-11.30 matur og hvíld, kl. 11.30-13.00 börn 6-12 ára. Kl. 13.00-14.00 er myndataka og áritanir, þar sem allir fá tækifæri til að láta taka mynd af sér með landsliðsmönnunum og fá áritanir. Kl. 14.00 hjóla landsliðsmenn af stað.