23. apr. 2026

Lokahóf meistaraflokks Harðar haldið um síðustu helgi

Meistaraflokkur Harðar hélt lokahóf síðustu helgi þar sem leikmenn kusu sín á milli besta liðsfélagann, besta leikmanninn, efnilegasta leikmanninn og mestu framfarir.

Meistaraflokkur Harðar hélt lokahóf síðustu helgi. Strákarnir kusu sín á milli og niðurstöðurnar liggja fyrir.

Stefán Freyr var kosinn besti liðsfélaginn og Zeca (José Esteves) besti leikmaður vetrarins. Axel Vilji var kosinn efnilegasti leikmaðurinn og Hermann Alexander fékk viðurkenningu fyrir mestar framfarir í vetur.