14. nóv. 2011
3. flokkur Harðar vann fyrsta sigurinn á Íslandsmóti
3. flokkur Harðar vann HKR 32-21 í Keflavík og tapaði naumlega fyrir Fram 27-26 í ferð suður um helgina.
3. flokkur Harðar fór í ferð suður um helgina. Fyrsti sigur flokksins á Íslandsmóti er staðreynd eftir öruggan sigur á HKR í Keflavík í gær, 32-21. Staðan í hálfleik var 15-10.
Í dag mætti flokkurinn Fram, sem er meðal efstu liða og gerði meðal annars jafntefli við KR um daginn. Hörður leiddi allan fyrri hálfleik og var yfir í hálfleik, 15-14. Leikurinn endaði 27-26 fyrir Fram.
Ingvar þjálfari var mjög stoltur af strákunum og sáttur með leiki helgarinnar.