9. mars 2026

Minning um Jens Kristmannsson, fyrrverandi formann Harðar

Jens Kristmannsson, fæddur 14. febrúar 1941 og fyrrverandi formaður Harðar, kvaddi um helgina og félagið minnist hans með þakklæti.

Um helgina kvaddi Jens Kristmannsson, fæddur 14. febrúar 1941. Hörður minnist hans sem sannra Harðverja sem var um áratugaskeið stór og mikilvægur hluti af félaginu, bæði sem iðkandi, knattspyrnumaður, virkur félagsmaður og formaður þess til margra ára. Allir sem stunda íþróttir innan félagsins standa í þakkarskuld við hann vegna forystustarfa hans fyrir félagið og hreyfinguna.

Áhrif Jens náðu langt út fyrir Hörð. Hann var formaður Íþróttabandalags Ísafjarðar, sat í framkvæmdastjórn ÍSÍ, var bæjarfulltrúi og virkur í pólitísku starfi. Hann var einnig landsdómari í knattspyrnu og gegndi fjölda annarra hlutverka innan íþróttalífsins.

Hörður kveður Jens með djúpu þakklæti, hlýju og virðingu og sendir fjölskyldu hans, ástvinum og öllum sem syrgja innilegustu samúðarkveðjur.