7. maí 2018
Skeljungsmótið gekk vel – FH Íslandsmeistari og vann Vestfjarðarbikarinn
Rúmlega 200 keppendur tóku þátt í Skeljungsmótinu og unnu FH-ingar bæði Íslandsmeistaratitilinn og Vestfjarðarbikarinn, en Dagur Sigurðsson afhenti verðlaunin.

Hið árlega Skeljungsmót fór fram fyrir tveimur vikum og tóku rúmlega 200 keppendur þátt. Mótið gekk mjög vel og vonast handboltadeildin til þess að flestir, ef ekki allir, keppendur og aðstandendur hafi farið sáttir heim. Leikmenn, þjálfarar og foreldrar fá mikið hrós fyrir prúðmennsku og kurteisi.
Eftir leiki föstudags var keppendum boðið í Ísafjarðarbíó og á laugardeginum skemmti Aron Can strákunum á kvöldvöku. Fararstjórar og þjálfarar fengu einnig að slaka á og skemmta sér á Húsinu á meðan bíó og kvöldvaka stóðu yfir. Á sunnudeginum stóðu FH-ingar uppi sem Íslandsmeistarar og unnu einnig Vestfjarðarbikarinn, sem er farandbikar og afhentur sigurvegurum 1. deildar ár hvert. Dagur Sigurðsson afhenti FH-ingum verðlaunin.
Handboltinn í Herði sendir bestu þakkir til sjálfboðaliða, styrktaraðila og allra sem komu að mótinu á einn eða annan hátt. Á næsta ári verður Hörður 100 ára og er það stefna handboltadeildarinnar að gera enn betur á næsta tímabili, bæði á mótinu og í handboltanum öllum. Meðfylgjandi myndir tók Einar Halldórs. og sýna þær mótabolinn sem keppendur fengu og FH-inga taka við bikarnum. Fleiri myndir má sjá á Facebook-síðu Skeljungsmótsins.


