7. maí 2018
5. flokkur karla vann sitt annað mót í röð
Strákarnir í 5. flokki karla unnu alla leiki sína á síðasta móti vetrarins og enda veturinn í 2. deild.

Síðasta mót vetrarins fór fram um helgina hjá 5. flokki karla. Strákarnir stóðu sig gríðarlega vel og unnu alla leikina nokkuð sannfærandi.
Þetta var annað mótið í röð sem liðið vann. Strákarnir enda því veturinn í 2. deild, en þeir byrjuðu veturinn í fjórðu deild.