31. jan. 2026
Hörður slítur samstarfi við Sergio Barros
Handknattleiksdeild Harðar hefur ákveðið að binda enda á samstarf við Sergio Barros með tafarlausum áhrifum vegna hegðunar sem samrýmdist ekki gildum félagsins.
Handknattleiksdeild Harðar hefur ákveðið að slíta samstarfi við Sergio Barros með tafarlausum áhrifum. Ástæðan er hegðun sem var ekki í samræmi við kröfur og gildi félagsins.
Í ákvörðuninni er tekið tillit til framkomu bæði innan vallar og utan sem hafði áhrif á faglegt umhverfi í kringum liðið. Félagið gerir kröfu um skuldbindingu, virðingu og fagmennsku af öllum sem koma fram fyrir þess hönd.
Félagið þakkar Sergio fyrir tímann á Ísafirði og mun ekki tjá sig frekar um málið.