5. feb. 2018
7. flokkur Harðar vann alla 8 leikina á þriðja hluta Íslandsmótsins
7. flokkur Harðar (2008-2009) vann alla 8 leiki sína á þriðja hluta Íslandsmótsins um helgina og næsta mót er á Selfossi 22-23. apríl.

7. flokkur Harðar (2008-2009) keppti á þriðja hluta Íslandsmótsins um helgina og vann alla 8 leiki mótsins. Vegna veðurspár spiluðu strákarnir alla leikina á laugardagsmorgni. Gist var í Kórnum, þar sem einnig var spilað, og þakkar félagið HK fyrir.
Drengirnir hegðuðu sér með sóma og voru afar ánægðir með ferðina. Áður en haldið var vestur aftur var farið í keilu, Shake og pizzur. Framtíðin er björt hjá þessum drengjum. Næsta mót þeirra er á Selfossi 22-23. apríl.
Æfingar hjá flokknum eru á fimmtudögum kl. 14.20 í Bolungarvík en rútan fer kl. 14 frá Ísafirði, og á föstudögum kl. 14 á Torfnesi. Spurningar um æfingar má bera undir Óskar þjálfara í síma 8675119.




