4. feb. 2018

5. flokkur drengja deildarmeistari á fyrsta Íslandsmóti sínu

Strákarnir í 5. flokki tóku þátt í sínu fyrsta Íslandsmóti, sem Haukar héldu, unnu alla leiki sína og urðu deildarmeistarar.

Strákarnir í 5. flokki tóku þátt í sínu fyrsta Íslandsmóti, sem Haukar héldu. Vegna manneklu leitaði félagið til Þróttar eftir aðstoð, en Þróttarar hafa aðeins tekið þátt í yngra árs mótunum í 5. flokki.

Strákarnir unnu alla leikina sannfærandi og urðu deildarmeistarar. Liðið lék frábæra vörn og flest það sem komst framhjá henni varði Stefán. Sóknarleikurinn batnaði með hverjum leik og oft var ekki hægt að sjá að þarna væru strákar að spila saman sem hittust í fyrsta skipti þennan dag.

Það skemmtilegasta var hversu vel strákarnir náðu saman, bæði inni á vellinum og utan hans. Með fréttinni fylgja tvær myndir af hópnum.