12. sep. 2025
Fyrsti heimaleikur Harðar í Grill66-deildinni á laugardag
Hörður tekur á móti ÍH í fyrsta heimaleik sínum í Grill66-deildinni á laugardag kl. 16:00 á Torfnesi og er frítt inn á alla leiki helgarinnar.

Handknattleikslið Harðar spilar sinn fyrsta heimaleik í Grill66-deildinni á leiktímabilinu 2025–2026 á laugardag kl. 16:00 í íþróttahúsinu á Torfnesi. Mótherjinn er Íþróttafélag Hafnarfjarðar (ÍH).
Nokkrar breytingar hafa orðið á liðinu í sumar. Markvörðurinn Jónas Maier er farinn frá félaginu og leikstjórnandinn Kenya Kasahara hélt heim til Japans. Nýir leikmenn eru Arturs Kugis, markvörður frá Lettlandi, og Sergio Barros, hornamaður frá Portúgal. Nýr þjálfari er Pedro Nunes frá Portúgal. Stefán Freyr Jónsson og Endijs Kusners verða í lykilhlutverkum, en Kusners hefur sitt sjötta tímabil með liðinu, 22 ára gamall. Brasilíumennirnir Zeca, Guilherme og Jhonatan, japönsku leikmennirnir Kei og Shuto, Axel Sveinsson og Óli Björn halda einnig áfram. Liðið er ungt og margir uppaldir leikmenn fá stór hlutverk.
Á laugardag kl. 13:30 mætir 3. flokkur drengja (U18) Stjörnunni og á sunnudag kl. 16:00 mætir 4. flokkur drengja (U16) Stjörnunni. Frítt er inn á alla leiki helgarinnar og allir eru velkomnir. Sjoppan verður opin.


