18. des. 2017

Arnar og Gautur Óli valdir í Hæfileikamótun HSÍ

HSÍ hefur farið af stað með Hæfileikamótun fyrir stráka fædda 2004 og eru Harðarmennirnir Arnar Rafnsson og Gautur Óli Gíslason í fyrsta hópnum.

HSÍ hefur farið af stað með Hæfileikamótun fyrir stráka fædda 2004. Verkefnið hefst í byrjun janúar.

Í fyrsta hópnum sem hefur verið valinn eru tveir Harðarmenn, þeir Arnar Rafnsson og Gautur Óli Gíslason. Hörður óskar þeim til hamingju og góðs gengis.

Á næstu dögum verða þessir tveir piltar kynntir nánar hér á síðunni.