20. okt. 2017
Daniel Wale Adeleye valinn í landsliðshóp drengja yngri en 18 ára
Daniel Wale Adeleye, leikmaður Harðar, hefur verið valinn í landsliðshóp Íslands fyrir drengi yngri en 18 ára og verður metinn á æfingum 27. - 29. október.

Daniel Wale Adeleye hefur verið valinn í landsliðshóp Íslands fyrir drengi yngri en 18 ára. Heimir Ríkharðsson landsliðsþjálfari mun meta drengina á æfingum 27. - 29. október.
Daníel er mjög fjölhæfur leikmaður og binda Harðverjar vonir við að hann verði framtíðarleikstjórnandi liðsins. Á næsta ári tekur meistaraflokkur Harðar þátt í 2. deild með ungt og upprennandi lið skipað strákum sem eru aldir upp hjá félaginu. Það er von Harðverja að Daníel verði einn af burðarásum í því liði ásamt öðrum mjög efnilegum Harðverjum á sama aldursbili.
Með fréttinni fylgja tvær myndir af Daníel í Harðartreyjunni. Félagið óskar honum til hamingju.
