20. okt. 2017

Daniel Wale Adeleye valinn í 18 ára landsliðshópinn

Daniel Wale Adeleye var valinn í 18 ára landsliðshópinn í lok síðustu viku og tekur þátt í æfingum 27-29. október.

Daniel Wale Adeleye, Danni, var valinn í 18 ára landsliðshópinn í lok síðustu viku. Æfingar hópsins fara fram 27-29. október.

Hörður óskar Danna til hamingju með valið og vonar að honum gangi vel á æfingunum. Harðverjar eru stoltir af honum og treysta á að hann komi sér í lokahópinn.