14. okt. 2017

Strákar í 7. flokki Harðar kepptu á sínu fyrsta móti

7. flokkur Harðar, drengir fæddir 2008 og 2009, spilaði 8 leiki á Íslandsmótinu í handbolta á Ásvöllum, vann 6, gerði eitt jafntefli og tapaði einum.

Helgina 13.–15. október keppti 7. flokkur Harðar, drengir fæddir 2008 og 2009, á Íslandsmótinu í handbolta. Haukar sáu um mótið og var keppt í íþróttahúsi þeirra á Ásvöllum í Hafnarfirði. Í þessum árgöngum er keppt á fjórum fjölliðamótum yfir veturinn. Strákarnir voru allir á sínu fyrsta móti. Yngri árgangurinn keppti með þeim eldri. Þeir spiluðu 8 leiki, unnu 6, gerðu eitt jafntefli og töpuðu einum. Þeir höfðu mjög gaman af og eru staðráðnir í að halda áfram.

Hörður vonast til að geta sent fleiri en tvö lið á næsta mót og stefnt er að því að fara með fjögur lið á mót sem fram fer 24.–26. nóvember. Félagið er með æfingar fyrir þessa aldursflokka á föstudögum kl. 14 á Torfnesi. Allir eru velkomnir og Óskar Jón Guðmundsson þjálfari leiðbeinir öllum eftir áhuga og getu.

Á myndinni eru frá vinstri Pétur Þór Jónsson, Dakis Halldórsson, Orri Norðfjörð Skúlason, Hermann Alexander Hákonarson, Kristján Hrafn Kristjánsson, Ernir Hauksson og Axel Vilji Bragason.