9. ágú. 2017

Óskar Jón Guðmundsson ráðinn þjálfari og framkvæmdastjóri Harðar

Óskar Jón Guðmundsson hefur gert þriggja ára samning við Handknattleiksdeild Harðar og tekur við af Grétari Eiríkssyni, sem hefur haldið til náms í Danmörku.

Óskar Jón Guðmundsson hefur gert þriggja ára samning við Handknattleiksdeild Harðar um að verða þjálfari og framkvæmdastjóri deildarinnar. Hann tekur við af Grétari Eiríkssyni sem hefur haldið til náms í Danmörku. Óskar hefur störf 1. október og þangað til munu afleysingamenn hlaupa í skarðið.

Óskar er Þróttari að upplagi og þjálfaði þar í tólf ár. Tvö síðustu árin þar þjálfaði hann meistaraflokk karla. Hann var þjálfari hjá Þrótti 2002 til 2009, var þá eitt tímabil hjá Gróttu og fór svo aftur til Þróttar í 5 ár áður en hann fór til Svíþjóðar. Undanfarin tvö tímabil hefur hann þjálfað meistaraflokk og 2. fl. karla hjá Spanga Handboll. Hann hefur lokið HSÍ 3A námskeiði og fjölda annarra íþróttanámskeiða.

Handknattleiksdeild Harðar ber miklar væntingar til Óskars og vonast til þess að hann aðstoði félagið við að taka næstu skref. Áætlað er að félagið sendi 7 flokka til keppni í Íslandsmóti vetrarins. Það mun að vanda halda sitt árlega stóra Íslandsmót í 5. fl. karla yngri í apríl 2018.