26. nóv. 2024

Leik aflýst: HK2 mætir ekki til Ísafjarðar og gefur leikinn

HK2 hefur ákveðið að mæta ekki í leik sinn gegn Herði á Ísafirði og hefur tilkynnt að liðið gefi leikinn.

HK2 hefur ákveðið að mæta ekki í leik sinn til Ísafjarðar og hefur leiknum því verið aflýst. Liðið hefur tilkynnt að það gefi leikinn.

Í tilkynningu Harðar kemur fram að það valdi Harðverjum miklum vonbrigðum að lið frá Reykjavík sjái sér ekki fært að mæta. Þetta er í annað skiptið sem leiknum er frestað eða aflýst með nokkurra klukkustunda fyrirvara.

Hörður segir að það sé erfitt fyrir lið úr Reykjavík að mæta til leiks á landsbyggðinni og bendir á að félagið hafi mætt í alla sína leiki. Félagið vonar að HSÍ taki fast á málum sem þessum.