4. nóv. 2024
Hornamenn Harðar á leið í landsliðsverkefni
Hornamennirnir Kederis og Estaliny Furtado undirbúa landsleiki, annar með Grikklandi í undankeppni EM 2026 og hinn með Grænhöfðaeyjum á alþjóðlegu móti í Kúveit.

Hornamennirnir Kederis og Estaliny Furtado, leikmenn Harðar, eru þegar komnir í undirbúning fyrir verkefni með landsliðum sínum.
Kederis berst með Grikklandi um sæti á Evrópumeistaramótinu 2026. Estaliny Furtado tekur þátt með Grænhöfðaeyjum á „Kuwait International Tournament“.
Hörður óskar þeim báðum góðs gengis.
