31. okt. 2024
Víðir Garði gefur leikinn gegn Herði
Víðir Garði hefur tilkynnt Herði og HSÍ að liðið gefi leikinn gegn Herði, og því er enginn leikur á morgun.

Víðir Garði hefur tilkynnt Herði og Handknattleikssambandi Íslands að liðið muni gefa leikinn gegn Herði. Vegna þessa verður enginn leikur á morgun.
Hörður óskar Víði góðs gengis í vetur í 2. deildinni og hlakkar til að mæta með lið Harðar 2 til þeirra í Garðinn í janúar næstkomandi.
Stuðningsmenn eru beðnir velvirðingar á því að leikurinn fellur niður.