24. okt. 2024
Engin æfingagjöld í handbolta hjá Herði
Hjá Herði eru engin æfingagjöld, ferðir kosta ekkert og búningar eru seldir á kostnaðarverði, og allir eru velkomnir að prófa handbolta.
Handknattleiksdeild Harðar fær stundum spurningu um hvað kosti að æfa handbolta. Svarið er að engin æfingagjöld eru hjá félaginu og allir eru velkomnir að prófa. Iðkendur þurfa að eiga íþróttaskó og búnað, en ef það er vandamál er félagið tilbúið að hjálpa.
Það kostar ekkert að fara í ferðir á vegum félagsins og aldrei er rukkaður kostnaður við gistingu í keppnisferðum. Keppnisbúningar eru seldir á kostnaðarverði og þeir sem eiga erfitt með að greiða fyrir þá fá aðstoð.
Þeir sem vilja hjálpa til við að fjármagna starfið, einstaklingar eða fyrirtæki, eru hvattir til að hafa samband eða taka þátt. Alltaf vantar fólk á pallana til að hvetja, í gæslu, til að keyra í keppnisferðir eða í önnur smærri verkefni, og ekkert framlag er of lítið.