15. júlí 2024
Endijs Kusners framlengir við Hörð um tvö ár
Handknattleiksdeild Harðar hefur samið við lettneska landsliðsmanninn Endijs Kusners um 2 ára framlengingu og byrjar þannig tímabilið.

Handknattleiksdeild Harðar byrjar tímabilið á 2 ára framlengingu samnings við lettneska landsliðsmanninn Endijs Kusners. Hann hefur nú þegar spilað með Herði í 4 ár.
Í tilkynningu félagsins segir að Endijs hafi á þessum tíma verið frábær jafnt innan vallar sem utan. Á vellinum hefur hann verið algjör klettur og sýnt einstaka hæfileika.
Félagið segist stolt af því að hafa Endijs í liðinu næstu árin og hlakkar til að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér með hann í hópnum.