3. feb. 2024

Jonas Maier og Ottor Karl Kont léku sinn fyrsta leik með Herði

Hörður lék í Reykjavík eftir langt ferðalag og næst er fyrsti heimaleikur ársins gegn Fjölni næsta laugardag kl. 16.00.

Eftir tvær tilraunir til að keyra suður og langt ferðalag lék Hörður leik í Reykjavík. Leikurinn var skemmtilegur og spennandi, segir í færslu félagsins.

Jonas Maier og Ottor Karl Kont léku þar sinn fyrsta leik með Herði. Félagið segir þá frábæra viðbót við liðið og að skemmtilegt verði að fylgjast með liðinu í vor.

Nú fer allt á fullt í undirbúning fyrir fyrsta heimaleik ársins, sem er næsta laugardag kl. 16.00 gegn Fjölni.