8. okt. 2016
Hörður lék þrjá leiki gegn Selfossi á Torfnesi
4. flokkur Harðar vann báða leiki sína gegn Selfossi, 19-17 og 28-15, en 3. flokkur tapaði sínum leik 21-26.

Hörður lék þrjá leiki á Torfnesi í dag og voru þeir allir gegn Selfossi. 4. flokkur lék tvo leiki en 3. flokkur einn.
4. flokkur vann fyrsta leik dagsins 19-17 eftir að hafa leitt með 6 mörkum í hálfleik. Leikur 3. flokks var frekar jafn lengst af en Selfoss var alltaf skrefinu á undan. Leikurinn var ágætlega spilaður af hálfu Harðar, en góðir skotmenn Selfoss tryggðu þeim sigurinn í lok seinni hálfleiks og lokatölur urðu 21-26.
4. flokkur lék svo aftur og átti sinn besta leik. Liðið spilaði hörkuvörn með frábæra markvörslu fyrir aftan, sem skilaði nokkrum hraðaupphlaupum. Helgi varði 15 skot í leiknum og allir útileikmenn áttu flottan leik. Lokatölur urðu 28-15. Myndir frá deginum tók Hrafn Snorrason.





