2. okt. 2016

4. flokkur vann Gróttu með 7 mörkum, 3. flokkur tapaði fyrir HKR

Eftir bíóferð kvöldið áður spilaði 3. flokkur við HKR í Keflavík og 4. flokkur mætti Gróttu á Seltjarnarnesi, og stefnt er á heimkomu um 22:30 í kvöld.

Ferðalag drengjanna hélt áfram. Eftir leik gærdagsins var farið í bíó á myndina Magnificent seven. Um morguninn fóru þeir til Keflavíkur, þar sem 3. flokkur spilaði við HKR. Leiknum lauk með sigri HKR.

Því næst var ekið beint á Seltjarnarnes, þar sem 4. flokkur mætti Gróttu. Leikurinn var vel spilaður á öllum stöðum og endaði með 7 marka sigri Harðar.

Hópurinn er nú kominn í Búðardal og hefur komist fram úr rokinu. Stefnt er á heimkomu um klukkan 22:30 í kvöld. Á myndinni sjást drengirnir sáttir með helgina í Búðardal.