1. okt. 2016

4. flokkur Harðar vann Stjörnuna 23-22 á Íslandsmótinu

4. flokkur Harðar vann Stjörnuna í Garðabæ með eins marks mun, 23-22, í fyrsta leik sínum á Íslandsmótinu, en 3. flokkur leikur sinn fyrsta leik á morgun.

4. og 3. flokkur Harðar óku til Reykjavíkur í morgun til að keppa þrjá leiki á Íslandsmótinu. 4. flokkur átti fyrsta leikinn og mætti Stjörnunni í Garðabæ. Hörður vann leikinn með eins marks mun, 23-22, og er það byrjun á nýju tímabili.

Á morgun leikur 3. flokkur sinn fyrsta leik gegn HKR í Keflavík klukkan 11. 4. flokkur lýkur ferðinni með leik gegn Gróttu á Seltjarnarnesi klukkan 14.

Meðfylgjandi mynd sýnir strákana í 4. flokki eftir leikinn í dag.