10. des. 2023

Hörður vann Víking U í síðasta leik ársins 2023

Hörður vann Víking U í síðasta leik liðsins árið 2023, þar sem Hermann Alexander Hákonarson og Pétur Þór Jónsson léku sína fyrstu meistaraflokksleiki.

Hörður vann Víking U í gær í síðasta leik liðsins árið 2023. Mikil gleði var í klefanum eftir leikinn.

Hermann Alexander Hákonarson kom inn á í sínum fyrsta meistaraflokksleik og varði tvö skot. Pétur Þór Jónsson skoraði sitt fyrsta mark í meistaraflokksleik.

Helgin endaði svo á sigri í dag þegar 4. flokkur sigraði í leik á móti Stjörnunni.