14. nóv. 2023

Frítt á handboltaæfingar fyrir Grindvíkinga í Ísafjarðarbæ

Handknattleiksdeild Harðar býður öllum sem vilja frítt á handboltaæfingar, en fregnir herma að Grindvíkingar séu komnir í bæinn.

Hörður hefur fengið fregnir af því að Grindvíkingar séu komnir í bæinn. Frítt er á handboltaæfingar fyrir alla sem vilja koma.

Þeir sem vilja fá upplýsingar um æfingartíma eru beðnir um að senda félaginu skilaboð á Facebook og taka fram aldur.

Hugur félagsins er hjá Grindvíkingum á þessum erfiðu tímum og sendir það þeim baráttukveðjur.