1. ágú. 2023
Endre Koi ráðinn nýr þjálfari Harðar til tveggja ára
Knattspyrnufélagið Hörður hefur kynnt Endre Koi sem nýjan þjálfara félagsins, en hann skrifaði undir 2 ára samning og hefur störf næstu daga.

Knattspyrnufélagið Hörður kynnti Endre Koi sem nýjan þjálfara félagsins. Hann skrifaði undir 2 ára samning við félagið og hefur störf næstu daga. Endre kemur til Ísafjarðar ásamt kærustu og hundi og hlakkar félagið til samstarfsins.
Endre var aðalþjálfari Budai Farkasok undanfarin 4 ár. Á árunum 2018-2020 var hann aðstoðarþjálfari ungverska U21 og U19 landsliðsins. Hann er með EHF mastercoach gráðu frá árinu 2018 og hefur lokið EHF young coaches workshop. Þá hefur hann lokið gráðu í handboltaþjálfun frá Ungverjalandi og er auk þess menntaður hagfræðingur.
Markmið félagsins er að vera með lið sem getur veitt bestu liðum deildarinnar samkeppni í vetur og barist um efstu sætin. Stór liður í því er að fá Endre til félagsins. Undanfarnar vikur hefur liðið einnig gert samninga við nokkra nýja leikmenn og er von á tilkynningu um 2 nýja leikmenn næstu daga.


